Nemendur í 10. bekk við Réttarholtsskóla sem leggja stund á heimspeki taka þátt í svo kölluðu etwinning verkefni, evrópsku samstarfsverkefni skóla þar sem fjallað er um hamingjuna. Þeir hafa nýverið tekið sér góðan tíma til að vega og meta ýmsa þætti sem hafa áhrif þegar um hamingju og óhamingju er að ræða. Í frétt hjá Sísýfos heimspekismiðju má lesa um framvindu samræðunnar.
Author: ritstjorn
Thinking – tímarit um barnaheimspeki
Tímaritið Thinking er gefið út af IAPC (The Institute for the Advancement of Philsophy for Children) við Montclair State University í New Jersey. Nýjasta tölublaðið (volume 20) er helgað verkum Matthew Lipman og Ann Margaret Sharp sem voru frumkvöðlar í barnaheimspeki, stofnendur IAPC og sátu í ritstjórn Thinking. Ann og Mat létust bæði árið 2010 og er þeirra beggja sárt saknað af heimspekingum og kennurum frá öllum heimshornum sem nutu þess að vinna með þeim og læra af þeim. Sýnishorn úr nýjasta tölublaði Thinking má nálgast hér og umsókn um áskrift að tímaritinu má nálgast hér.
Fréttabréf nóvember mánaðar
Fréttabréf nóvember mánaðar er komið út. Meðal efnis eru fréttir af málþingi félagsins, þingsályktunartillögu um heimspeki sem skyldunámsgrein, nýrri námskrá, nýju veftímariti og loks er kennsluseðill sem lýsir samræðuverkefni um sjálfið.
Viðtal við heimspekikennara: Ylfa Björg Jóhannesdóttir
Í október 2012 tók Heimspekitorgið viðtal við Ylfu Björg Jóhannesdóttur, heimspekikennara við Landakotsskóla í Reykjavík. Continue reading Viðtal við heimspekikennara: Ylfa Björg Jóhannesdóttir
Málstofa: gagnrýnin umræða um fjármál
Verkefnið Efling kennslu í gagnrýninni hugsun og siðfræði mun á næstu misserum standa fyrir hádegismálstofum þar sem tengsl gagnrýninnar hugsunar og siðfræði við önnur svið veruleikans eru skoðuð. Fyrsta málstofan verður haldin fimmtudaginn 1. nóvember klukkan 12:00–13:00 í Odda 106 og verður efni hennar fjármál.
Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi og Eyja Margrét Brynjarsdóttir heimspekingur munu halda erindi um mikilvægi gagnrýninnar og upplýstrar umræðu um fjármál og eðli peninga.
Það eru Rannsóknastofa um háskóla, Heimspekistofnun og Siðfræðistofnun sem standa að verkefninu.
Málstofustjóri: Henry Alexander Henrysson
Leshefti um grunnþætti menntunar
Námsgagnastofnun hefur gefið út þrjú leshefti sem skýra grunnþætti menntunar í nýrri Aðalnámskrá. Hvert hefti fjallar um einn grunnþátt og er hugsað sem ítar- og skýringarefni við almenna hluta Aðalnámskrár sem gefin var út 2011. Þau leshefti sem nú eru komin út fjalla um læsi, sköpun og lýðræði og mannréttindi. Þrjú hefti til viðbótar koma út eftir áramót og munu þau fjalla um sjálfbærni, jafnrétti og velferð/heilsu.
Koma grunnþættirnir heimspekinni við? Hvernig getur heimspekileg samræða í skólum stuðlað að auknu lýðræði, meiri sköpun og bættu læsi? Continue reading Leshefti um grunnþætti menntunar
Örnámskeið í siðfræði
Laugardaginn 27. október n.k. verður annað örnámskeiðið á vegum Siðmenntar og Sísyfosar heimspekismiðju haldið. Að þessu sinni verður athyglinni beint að siðfræðinni sem er ein af greinum heimspekinnar. Þátttakendur fá að takast á við ýmis siðferðileg álitamál og kynnast lítillega nokkrum algengustu siðfræðikenningunum. Continue reading Örnámskeið í siðfræði
Vel heppnað málþing
Laugardaginn 13. október hélt Félag heimspekikennara í samstarfi við verkefnið Efling gagnrýninnar hugsunar og siðfræði í skólum málþingið Hver er heimspekin í barnaheimspekinni? Málþingið sóttu um 60 manns, heimspekingar og kennarar af öllum skólastigum. Þór Saari opnaði þingið og sagði frá þingsályktunartillögu sem hann lagði nýlega fyrir Alþingi ásamt fleiri þingmönnum um heimspeki sem skyldunámsgrein í grunn- og framhaldsskólum. Á málþinginu voru flutt 9 erindi þar sem fjallað var um heimspekikennslu á fræðilegan hátt auk þess sem skemmtileg reynsludæmi voru lögð fram. Hreinn Pálsson skólastjóri Heimspekiskólans frumsýndi nokkur myndbönd þar sem Matthew Lipman svarar spurningum um grundvallaratriði í barnaheimspeki. Viðtölin við Lipman voru tekin upp sumarið 1992 þegar Lipman heimsótti Ísland ásamt Ann Margaret Sharp og fleiri frumkvöðlum barnaheimspekinnar. Continue reading Vel heppnað málþing
Nýtt veftímarit: If then?
Á vefsvæðinu p4c.com er ýmiss konar efni tengt heimspeki með börnum. Hægt er að kaupa aðgang að kennsluefni og fleiri gögnum sem heimspekingar og kennarar leggja til síðunnar. Þar að auki er hluti síðunnar opinn öllum, t.d. tímaritið If then? þar sem birtar eru mikilvægar greinar úr sögu barnaheimspekinnar. Hvert tölublað If then? er helga ákveðnu þema, t.d. er fyrsta tölublaðið helgað heimspekilega samræðufélaginu (community of inquiry).
—
Siðfræði – námskeið hjá EHÍ
Hefur þú velt fyrir þér spurningum og álitamálum af siðferðilegum toga? Langar þig til að geta myndað þér hlutlæga og gagnrýna skoðun á slíkum málum? Á námskeiðinu Siðfræði: að greina, gagnrýna og bæta siðferði hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands verða markmið og möguleikar siðfræðinnar kynnt á aðgengilegan hátt. Continue reading Siðfræði – námskeið hjá EHÍ


