Miðvikudagskvöldið 14. nóvember 2018, kl. 19, heldur Jóhann Björnsson heimspekikennari og doktorsnemi í menntunarfræðum opið fræðsluerindi á vegum Félags heimspekikennari, þar sem hann hyggst kynna útgefnar kennslubækur sínar og aðferðir til að beita þeim í skólastofunni.
Viðburðurinn fer fram í Iðu Zimsen, Vesturgötu 2a, og er opinn öllum kennurum og áhugafólki um heimspeki sem kennsluaðferð.
Aðalfundur Félags heimspekikennara fór fram á Kaffi Laugalæk í dag. Kosin var ný stjórn, en hana skipa:
Skúli Pálsson, formaður Valur B. Antonsson, varaformaður Katrín Pálmadóttir Þorgerðardóttir, ritari Kristian Guttesen, gjaldkeri Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir, meðstjórnandi Ragnheiður Eiríksdóttir, meðstjórnandi
Varamenn í stjórn:
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir Nanna Hlín Halldórsdóttir
Ráðgert er að félagið standi fyrir málþingi um heimspekilega nálgun á samfélagsfræði í febrúar 2019. Fleiri viðburðir eru í burðarliðnum og er einnig gert ráð fyrir að boðið verði upp námskeið fyrir heimspekikennara á vorönn 2019.
Ný stjórn hlakkar til starfsársins og verða færðar nánari fréttir af starfinu síðar.
Ritstjórar heimspekitorgins fengu ábendingu frá hýsingaraðilanum, 1984.is, um að vefurinn hefði lent í klónum á hökkurum. Til að koma í veg fyrir frekari skaða lokaði hýsingaraðilinn tímabundið fyrir erlent aðgengi. Eftir að hafa hreinsað óværuna burt, notuðum við tækifærið og uppfærðum kerfið og útlitið. Það er mikilvægt fyrir okkur að vefurinn okkar virki sem skyldi og því viljum við leita til ykkar sem nota hann um að senda okkur ábendingar ef þið rekið augun í eitthvað grunsamlegt.
Félag heimspekikennara í samstarfi við The Philosophy Foundation heldur námskeiðið HEIMSPEKI MEÐ BÖRNUM Í LEIK-, GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLA dagana 9.-10. ágúst 2018. Um tveggja daga vinnustofu er að ræða og allir eru velkomnir.
Staðsetning: Garðaskóli, Garðabæ Tími: 9.-10. ágúst 2018, kl. 9-16 báða daga Námskeiðsgjald: 32.000 krónur
Um námskeiðið:
Emma og Pete Worley frá The Philosophy Foundation koma til Íslands og halda tveggja daga „Stage 1“ námskeið þar sem farið er á dýptina í fræðum og framkvæmd heimspekilegrar samræðu með börnum og ungmennum. Námskeiðið er skemmtilegt og innihaldsríkt og hentar öllum kennurum, bæði þeim sem þegar hafa reynslu af kennslu í heimspeki og samræðu og algjörum byrjendum á þessu sviði. Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast og þróa færni sína í stjórnun heimspekilegrar samræðu. Continue reading Námskeið með Emma og Peter Worley
Norræn samtök um heimspekilega ráðgjöf héldu sjöundu ráðstefnu sína í samstarfi við félag heimspekikennara í Íslandi vorið 2017. Ráðstefnan fór fram í Landakotsskóla auk þess sem hún teygði anga sína út á Reykjanesskagann. Dagskráin var nærandi og gestir sammála um að ráðstefnan hefði boðið til einstaklega gefandi samræðu.
Norræn ráðstefna um heimspekilega ráðgjöf fer fram í Osló dagana 21. og 22. apríl næstkomandi. Kristian Guttesen verður fulltrúi okkar Íslendinga og flytur erindi á ráðstefnunni. Nánari upplýsingar um skráningu og fleira má nálgast hér: Invitation_8th Nordic Conference for Philosophical Practice
Aðalfundur félags heimspekikennara verður haldinn í Hannesarholti, Grundarstíg 10 í Reykjavík, fimmtudaginn 16. nóvember kl. 20-22.
Dagskrá fundarins:
Heimspekikennsla á tímum tækninnar. Atli Harðarson og Ragnar Þór Pétursson flytja hugleiðingar. Samræða í kjölfarið.
Hefðbundin aðalfundarstörf. Skýrsla stjórnar og reikningar verða lagðir fram. Stjórnin öll býður sig fram til áframhaldandi starfs en kallar eftir aðkomu fleiri félaga í ritstjórn Heimspekitorgsins.
Við hvetjum félagsmenn og aðra áhugasama til að mæta og taka þátt í mikilvægri ígrundun um heimspeki og menntun. Hannesarholt er opið frá hádegi og fram til kl. 22 á fimmtudögum. Fundurinn fer fram í veitingasal og gestir geta verslað í veitingasölunni.
Haustið 2015 tilkynnti Mennta- og menningarmálaráðuneytið að styrkir til fagfélaga yrðu alfarið felldir niður. Fulltrúar fagfélaga innan Kennarasambands Íslands komu saman síðastliðið vor og mótmæltu niðurfellingunni harðlega.
Ákvörðun ráðuneytisins var einhliða og með henni var fjárhagslegum grundvelli margra fagfélaga kippt í burtu. Félag heimspekikennara er í þessum hópi enda er félagið fámennt og hefur aldrei innheimt skráningargjöld. Mikið hefur gengið á sjóði félagsins og ljóst er að huga þarf betur að umsóknum um aðra styrki til að halda uppi námskeiðum og annarri starfsemi.
Dagana 9.-10. júní stendur Félag heimspekikennara að norrænni ráðstefnu um praktíska heimspeki. Á ráðstefnunni verða haldnar gagnvirkar vinnustofur og fara þær allar fram á ensku.
kl. 11:15 – Einar Kvaran – Philosophy, nature and flattery
kl. 12:15 – matarhlé
kl. 13:00 – Sigríður Þorgeirsdóttir – aðalfyrirlestur:
Philosophical practice and experiential, embodied knowledge.
Reflections on Eugene Gendlin´s method of philosophical practice
Laugardaginn 20. maí er námskeið í Garðaskóla á vegum Félags heimspekikennara. Breski heimspekikennarinn Jason Buckley leiðbeinir kennurum um hvernig þeir geta innleitt heimspekileg viðfangsefni og samræðu í daglega kennslu. Buckley er hress og býr til mjög flott kennsluefni, kallar sig Philosophy Man og er með vefinn: http://www.thephilosophyman.com/.
Námskeiðið kostar 10.000 krónur og stendur yfir milli kl. 9-16. Matur er innifalinn.