Heimspekitorgið í klónum á hökkurum

Ritstjórar heimspekitorgins fengu ábendingu frá hýsingaraðilanum, 1984.is, um að vefurinn hefði lent í klónum á hökkurum. Til að koma í veg fyrir frekari skaða lokaði hýsingaraðilinn tímabundið fyrir erlent aðgengi. Eftir að hafa hreinsað óværuna burt, notuðum við tækifærið og uppfærðum kerfið og útlitið. Það er mikilvægt fyrir okkur að vefurinn okkar virki sem skyldi og því viljum við leita til ykkar sem nota hann um að senda okkur ábendingar ef þið rekið augun í eitthvað grunsamlegt.