Málþing um gagnrýna hugsun og menntun verður haldið í Hannesarholti þriðjudaginn 2. desember kl. 20.00. Málþingið er haldið í tilefni af því að nýlega kom út bókin Hugleiðingar um gagnrýna hugsun: Gildi hennar og gagnsemi eftir heimspekingana Henry Alexander Henrysson og Pál Skúlason. Athyglinni verður sérstaklega beint að hlutverki gagnrýninnar hugsunar í menntun. Continue reading Málþing um gagnrýna hugsun og menntun
Heimsókn til heimspekikennara
Félag heimspekikennara býður í heimsókn til heimspekikennara. Jóhann Björnsson kennari við Réttarholtsskóla ætlar að segja frá því sem hann gerir í heimspekikennslu með 8. – 10. bekkingum. Í skólanum er heimspeki skylda í 8. bekk og val í 9. og 10. bekk. Jóhann hefur gefið út skemmtilegt og afar hagnýtt námsefni á síðustu misserum og upplýsingar um það má t.d. lesa á bloggsíðu hans: http://heimspekismidja.wordpress.com/
Tími: fimmtudagurinn 6. nóvember 2014 kl. 20-22
Staður: Réttarholtsskóli við Réttarholtsveg í Reykjavík.
—
Til hvers heimspeki? Aftanspjall…
Aftanspjall Félags áhugamanna um heimspeki verður haldið þann 22. október. Samræðan hefst klukkan 19:30 og mun fara fram á veitinga- og skemmtistaðnum Bast, Hverfisgötu 20 (á móti Þjóðleikhúsinu).
Frummælendur verða Börkur Gunnarsson, Salvör Nordal og Brynhildur Sigurðardóttir sem munu leitast við að svara spurningu kvöldsins: Til hvers heimspeki? Öll eru þau heimspekimenntuð en hafa valið sér ólíkan starfsvettvang og fáum við þau til að deila með áheyrendum hvernig heimspekinámið hefur nýst þeim í þeirra störfum. Hvert telja þau hlutverk heimspekinnar vera eða geta orðið fyrir utan hið fræðilega svið.
Jakob Guðmundur Rúnarsson, doktorsnemi í heimspeki, stýrir fundinum . Continue reading Til hvers heimspeki? Aftanspjall…
Heimsókn til heimspekikennara
Félag heimspekikennara býður í heimsókn til heimspekikennara. Arnar Elísson kennari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ segir frá því sem hann gerir í heimspekiáföngum skólans. Hann mun tala um hvernig hann skipuleggur áfanga, hvaða lesefni hann setur fyrir og hvernig hann hagar kennslunni almennt. Í FMos er verið að þróa leiðsagnarmat og námið allt er verkefnamiðað. Arnar segir sjálfur að hér verði um játningar kennarans að ræða.
Tími: Miðvikudaginn 24. september kl. 20-22
Staður: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Bjarkarholti 5, Mosfellsbæ
Ný stjórn félags heimspekikennara
Aðalfundur 21. júní
Aðalfundur félags heimspekikennara verður haldinn þann 21. júní 2014 kl. 11-12 í Landakotsskóla, Túngötu 15, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Arnar Elísson kynnir rafbók um heimspeki og kvikmyndir.
2. Stjórnin leggur fram ársskýrslu.
3. Kosin verður ný stjórn og eru áhugasamir hvattir til að bjóða sig fram.
4. Önnur mál
Kvenheimspekingakaffi: Onora O’Neill – 27. mars, kl. 15 í Árnagarði 301

Onora O’Neill er fædd á Norður Írland og á að baki glæsilegan akademískan feril. Hú stundaði nám við Oxford háskóla og Harvard háskóla þaðan sem hún lauk doktorsnámi undir leiðsögn hins merka stjórnmálaheimspekings John Rawls. Hún hefur kennt við fjölmarga háskóla í Bretlandi og Bandaríkjunum m.a. kennt um árabil við Cambridge háskóla. Þá hefur hún gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum og verið fulltrúi í bresku lávarðadeildinni frá 1999. Continue reading Kvenheimspekingakaffi: Onora O’Neill – 27. mars, kl. 15 í Árnagarði 301
Málstofur um heimspeki á Hugvísindaþingi
Dagana 14.-15. mars verður Hugvísindaþing haldið í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Heimspekitorgið vill vekja athygli heimspekinga á ráðstefnunni og sérstaklega á eftirfarandi málstofum Continue reading Málstofur um heimspeki á Hugvísindaþingi
Kvenheimspekingakaffi – Heimspeki Mariu Zambrano

Verið velkomin í Kvenheimspekingakaffi á fimmtudag, 13. mars, kl. 15 í Árnagarði 301.
Jón Ragnar Ragnarsson mun fjalla um heimspeki Mariu Zambrano.
Maria Zambrano fæddist árið 1901 í Velez, Malaga á Spáni. Zambrano var merkur heimspekingur og rithöfundur sem lét eftir sig mikið safn rita. Hún tók virkan þátt í starfi lýðræðissinna á tímum borgarastyrjaldarinnar og fluttist úr landi eftir að falangistar komust til valda árið 1939. Zambrano flutti ekki aftur heim til Spánar fyrr en eftir 45 ára útlegð í Mexíkó, Puerto Rico, Kúbu, Ítalíu og víðar. Skrif hennar eru nátengd reynslu hennar í borgarastríðinu og þeirri atburðarrás sem fylgdi í kjölfarið. Aðskilnaður við vini og fjölskyldu, fátækt og veikindi reyndust henni innblástur í heimspekinni sem hún gagnrýndi fyrir að hafa glatað tengslum við veruleikann. Zambrano fékk Cervantes verðlaunin árið 1988. Continue reading Kvenheimspekingakaffi – Heimspeki Mariu Zambrano
„Virðing í netmiðlum“ – Vinnustofa
![1078891_10151642995138138_902839709_o1[1]](https://gagnryninhugsun.hi.is/wp-content/uploads/1078891_10151642995138138_902839709_o1-644x320.jpg)
Föstudaginn 7. mars kl. 15:00 stendur MenntaMiðja fyrir vinnustofu sem ber yfirskriftina „Virðing í netmiðlum“ í stofu H-201 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ v/Stakkahlíð.
Stjórnandi er Kristian Guttesen, sem sótti ráðstefnu um efnið á vegum Pestalozzi áætlunar Evrópuráðsins í nóvember sl. Pestalozzi ráðstefnur eru ætlaðar til að stuðla að starfsþróun skólafólks með því að bjóða útvöldum kennurum og öðru skólafólki tækifæri til að kynnast því nýjasta sem er að gerast á tilteknum sviðum sem tengjast námi og kennslu. Continue reading „Virðing í netmiðlum“ – Vinnustofa



