Félag heimspekikennara stendur í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir sumarnámskeiði um gagnrýna hugsun og grunnþætti menntunar.
Námskeiðið er einkum ætlað framhaldsskólakennurum til að skerpa á og styðja við þá stefnumótun sem ný aðalnámskrá framhaldsskóla hefur í för með sér, og skýra tengsl gagnrýninnar hugsunar við grunnþætti menntunar í henni.
Öðrum kennurum en framhaldsskólakennurum býðst að skrá sig til þátttöku á námskeiðið gegn greiðslu. Framhaldsskólakennarar sem eru í 50% starfi eða meira hafa forgang um sæti sér að kostnaðarlausu.
Farið verður yfir ólíkar leiðir til að beita gagnrýninni hugsun sem kennsluaðferð í að miðla grunnþáttum menntunar til nemenda á framhaldsskólastigi. Fjallað verður sérstaklega um gagnrýna hugsun og tengsl hennar við grunnþættina, en jafnframt skoðað hvaða forsendur búi að baki því að segja að kennsla, nám eða hugsun séu gagnrýnin.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Í hverju felst gagnrýnin hugsun?
- Lýðræði, réttlæti og menntun
- Heimspekileg samræða
- Lýðræði og jafnrétti
- Heimspeki á vettvangi
- Gagnrýnin hugsun og siðfræði
Fyrir hverja:
Fyrir alla framhaldsskólakennara, einkum þá sem ekki hafa kynnst heimspekilegri hugsun eða telja sig engan grunn hafa í heimspeki. Námskeiðið getur þó líka gagnast þeim sem hafa reynslu í heimspeki eða heimspekikennslu.
Umsjón: Kristian Guttesen
Verð: Námskeiðið er frítt fyrir starfandi framhaldsskólakennara í meir en 50% starfi. Námskeiðið kostar 32.000 kr. fyrir aðra kennara.
Hvenær: Fös. 31. maí kl. 13:00 – 17:00, lau. 1. júní kl. 9:00 – 16:00 og mán. 3. júní kl. 9:00 – 16:00 (3x)
Skráning fyrir starfandi framhaldsskólakennara hér.
Skráning fyrir aðra kennara en framhaldsskólakennara hér.
Nánari upplýsingar má einnig finna á vef Endurmenntunar, sjá hér.