Hugsuðu þær öðruvísi? – Konur í heimspeki, frá fornöld til samtímans

Mánudaginn 9. desember, kl. 20 í Hannesarholti, Grundarstíg 10

Ykkur er boðið til samtals um heimspeki á vegum Hannesarholts, Félags áhugamanna um heimspeki og Háskólaútgáfunnar í tengslum við útgáfu bókar Sigríðar Þorgeirsdóttur prófessors; Dagbók 2014: Árið með heimspekingum.

Hugsuðu þær öðruvísi? – Konur í heimspeki, frá fornöld til samtímans

Svo virðist sem hugðarefni margra kvenheimspekinga séu og hafi verið á skjön við ýmis ráðandi stef í kenningum karl-heimspekinga. Í framsögu sinni veltir Sigríður Þorgeirsdóttir upp þeirri spurningu hvort saga vestrænnar heimspeki sé á einhvern hátt öðruvísi þegar hún er sögð í ljósi kvennanna sem lagt hafa stund á heimspeki í gegnum tíðina. Hugsuðu þær á einhvern hátt öðruvísi?

Út er komin bók eftir Sigríði sem hefur að geyma stuttar lýsingar á mörgum helstu helstu kven-heimspekingum veraldarsögunnar allt frá fornöld til samtímans. Sigríður er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.