Aðalfundur félags heimspekikennara

Sæl veriði,

Þann 28. júní kl. 20 fer fram aðalfundur félags heimspekikennara. Fundarstaður er Hlutverkasetur, í kjallara, Engjateig 3, 105 Reykjavík.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og óskað er eftir framboðum í stjórn og til formanns. Undirritaður stígur til hliðar eftir fjögur ár við formennsku.

Dagskrá aðalfundar:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  • Lagðir fram reikningar til samþykktar.
  • Kosning stjórnar og nýs formanns.
  • Önnur mál.

Kær kv. Guðmundur Arnar Sigurðsson

Formaður félags heimspekikennara