Heimspekilegri æfingu sem boðað var til 9. maí hefur verið frestað vegna veikinda leiðbeinanda. Nýr tími verður auglýstur fljótlega.
Næsta æfing félags heimspekikennara verður miðvikudaginn 9. maí kl. 20.00 á kennarastofu Verzlunarskóla Íslands við Ofanleiti í Reykjavík. Þá mun Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir heimspekikennari í Garðabæ stjórna æfingu. Hún mun koma með textabrot eftir Spinoza sem rýnt verður í til að kynnast heimspeki hans.
—