Tígrisdýrið í sýningarskápnum

Atli Harðarson kynnir bók

Atli Harðarson segir frá bókinni Tígrisdýrið í sýningarskápnum og höfundi hennar Alkí Zeí (Άλκη Ζέη, 1923–2020). Hann hefur þýtt bókina á íslensku og hún kemur út nú í vetur.

Þessi bók, sem kom fyrst út árið 1963, er ein af perlunum í barnabókmenntum síðustu aldar og hefur verið þýdd á meira en tuttugu tungumál og gefin út aftur og aftur.

Sagan sem hún segir gerist á grísku eyjunni Samos árið 1936 þegar lýðræði í Grikklandi var afnumið. Sögupersónurnar eru börn sem skynja ótta fullorðna fólksins við húsleitir, handtökur og ofsóknir og rata í mikil ævintýri sem tengjast örlagaríkum atburðum í sögu síðustu aldar.

Bókin er mjög auðug af umræðuefnum sem tengjast hugrekki, heiðarleika, vináttu, valdi, hlýðni og samskiptum barna við fullorðna.

Upplýsingar (á ensku) um höfundinn og verk hennar má finna á https://www.alkizei.com/en/“

Allir velkomnir í Hamraborg á laugardaginn 31 október kl 13:30!!