Sæl veriði,
Þann 28. júní kl. 20 fer fram aðalfundur félags heimspekikennara. Fundarstaður er Hlutverkasetur, í kjallara, Engjateig 3, 105 Reykjavík.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og óskað er eftir framboðum í stjórn og til formanns. Undirritaður stígur til hliðar eftir fjögur ár við formennsku.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
- Lagðir fram reikningar til samþykktar.
- Kosning stjórnar og nýs formanns.
- Önnur mál.
Kær kv. Guðmundur Arnar Sigurðsson
Formaður félags heimspekikennara
