Fimmtudaginn 19. febrúar kl: 19:30 – 21:00 að Engjateigi 3, kjallara (nýtt húsn. Hlutverkaseturs). Leiðbeinandi: Svanur Sigurbjörnsson, BA/MA.
Heimspekileg hugsun þarfnast æfingar og fátt er betra í því tilliti en að æfa málefnalega og greinandi hugsun í vinnustofu með öðrum. Í vinnustofunni taka allir þátt og leiðbeinandinn gætir ákveðins forms og ferlis en skiptir sér minna af innihaldinu. Byggt er á grunni heimspekiskóla Oscars Brenifer og Isabelle Million, Institute of Philosophical Practice. Í þessari heimspekiæfingu, sem Svanur Sigurbjörnsson leiðir, verður stórt hugtak tekið til rannsóknar ykkar, þátttakendanna, eftir að þrjár vísanir um merkingu þess eru leiddar í ljós. Leggjast á í hæga og djúpa skoðun á merkingu þess og heppilega skilgreiningu, gegnum samtalið. Það á að rífa sig úr venjum og því viðtekna, setja saman sjálfstæða hugmynd og vinna í því sem getur skort upp á eða ekki. Við rífum okkur einnig frá okkur sjálfum og æfum hlutlægt sjónarhorn sem þjónar heild. Getum við komið okkur saman um heppilega skilgreiningu?
Heimspekiæfingar eða heimspekivinnustofur sem þessar verða hluti af 12. Norrænu ráðstefnu um heimspekilega iðkun: friður og möguleikar, sem verður haldin í þetta sinn í Menntaskólanum við Hamrahlíð dagana 23. – 24. maí næstkomandi. Það er kjörið tækifæri að nýta sér heimavöllinn og taka þátt. Skráning á ráðstefnuna er nú þegar hafin á:
Liðkum nú heimspeki-málbein okkar og mætum á æfingu. 😊
