HVAR: Á Zoom
HVENÆR: föstudaginn 25. júní 2021, kl. 15-18, og laugardaginn 26. júní 2021, kl. 10-13 & kl. 14-17
VERÐ: kr. 17.500 (greiða verður þátttökugjald að fullu fyrirfram, ath. að mörg stéttarfélög endurgreiða kostnað)
Ath. Námskeiðið fer fram á ensku. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á heimspekikennarar@gmail.com
Félag heimspekikennara stendur fyrir námskeiði undir leiðsögn Oscar Brenifier og Isabelle Millon, þar sem þátttakendur þjálfast í heimspekilegri samræðu og samræðustjórnun.
Í þessu námskeiði munum við hugsa út fyrir kassann með ýmsum æfingum. Við munum skoða hvernig heimspekileg samræða virkar og á hverju hún byggist sem verkfæri til að dýpka gagnrýna hugsun. Við bjóðum þátttakendum að vera með í ferli sem miðar að því að verða gerandi í hugsandi samtali: að læra með öðrum, að sjá hvernig okkar eigin orð hafa merkingu ekki bara fyrir okkur heldur líka fyrir öðrum.
Þetta ferli felur í sér í fyrsta lagi að við þurfum að skoða framkomu okkar: að hlusta, að halda fjarlægð frá sjálfum sér, að taka ábyrgð á orðum sínum, að læra að treysta sjálfum sér, þolinmæði.
Í öðru lagi felur ferlið í sér vinnu með heimspekilega færni: röksemdafærslu, túlkun, að greina forsendur, að spyrja réttra spurninga, að hugtaka.
Þessi viðhorf og færni gilda bæði í samskiptum við fullorðna og börn.
Leiðbeinendur námskeiðsins eru:
Oscar Brenifier
http://www.pratiques-philosophiques.fr/en/welcome/
Isabelle Millon
https://isabellemillon-pratique-philosophique.com/en/home/