Lærdómssamfélagið – Samræða allra skólastiga
Ráðstefna um menntamál í Íþróttahöllinni á Akureyri
Kall eftir erindum á málstofur ráðstefnunnar
Þann 4. október n.k. verður haldin ráðstefna á Akureyri á vegum allra skólastiga. Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að samræðu kennara og stjórnenda af öllum skólastigum um lærdómssamfélagið. Ráðstefnan er haldin á Akureyri og boðuð í öllum símenntunarmiðstöðvum, leik-, grunn-, framhalds- og háskólum á landinu.
Auglýst er eftir erindum fyrir málstofur frá fræðimönnum, kennurum, sérfræðingum skóla, kennsluráðgjöfum, og öðrum áhugasömum aðilum. Sóst er eftir nýlegu efni sem ekki hefur hlotið kynningu áður á ráðstefnum. Einkum er leitað eftir:
- Fræðilegri umfjöllun eða frásögnum af birtingarmyndum lærdómssamfélagsins í íslenskum menntastofnunum
- Fræðilegri umræðu um tengsl skólastiga
- Frásögnum af nýbreytni og þróunarstörfum á öllum skólastigum
- Kynningu á nýlegum íslenskum rannsóknum er varða skólastarf
Í hverri málstofu verður 20-30 mínútna erindi auk 20-30 mínútna til umræðna.
Frestur til að senda inn lýsingu á erindi, að hámarki 300 orð, er til 10. september 2013. Svör um samþykki frá ráðstefnunefnd munu berast fyrir 20. september. Fyrirlesarar á málstofum greiða ekki skráningargjald á ráðstefnuna. Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar hefur umsjón með ráðstefnunni í samvinnu við Akureyrarbæ, aðildarfélög KÍ á Norðurlandi, Miðstöð skólaþróunar HA, framhaldsskólana á Norðurlandi, mennta og menningarmálaráðuneytið.
Allar nánari upplýsingar gefur Heimir Haraldsson í síma 460 5720 eða gegnum netfangið: heimir@simey.is
—