Erindi á vegum Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar og Þjóðminjasafns Íslands haldið fimmtud. 11. apríl kl. 16:10

Ólafur Páll JónssonHeiti erindisins er: Aðgengismál: Útsýnið handan þröskuldarins

Dr. Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Snædís Rán Hjartardóttir og Áslaug Ýr Hjartardóttir flytja erindið. Þær Snædís Rán og Áslaug Ýr eru systur og nemendur við M.H. Síðast liðið sumar vöktu þær talsverða athygli fyrir framgöngu sína en þær mynduðu 2/3 af Skyttunum þremur sem gerðu útttekt á aðgengismálum á Laugarveginum. Í erindinu velta þau fyrir sér hvað greiðir fyrir og hvað hindrar aðgengi fatlaðs fólks að skóla og samfélagi. Tími mun gefast fyrir spurningar og umræður.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Sjá nánar á Facebook síðu viðburðarins: http://www.facebook.com/events/520455114660117/