ICPIC, alþjóðasamtök barnaheimspekinga, uppfærðu nýlega heimasíðu sína. Þar má nálgast upplýsingar um ráðstefnu samtakanna sem hefst í Suður-Afriku í byrjun september. Heimasíðan birtir upplýsingar um ýmsar ráðstefnur og námskeið á sviði barnaheimspeki auk þess sem þar verða í boði nokkrir umræðuhópar sem áhugasamir geta skráð sig í.
Author: brynhildur
Fréttabréf ágústmánaðar
Í nýútkomnu Fréttabréfi heimspekikennara birtir stjórn Félags heimspekikennara drög að dagskrá vetrarins. Þar er ótal margt í boði: heimspekilegar æfingar, málfundir, ráðstefnur og námskeið. Auk þess er í fréttabréfinu sagt frá rannsóknarverkefni um heimspekikennslu, ráðstefnu á Akureyri í október og nýafstöðnum umræðufundi um eflingu heimspekikennslu. Að venju eru líka tenglar inn á ný verkefni og… Continue reading Fréttabréf ágústmánaðar
Fundur áhugafólks um eflingu heimspekikennslu
Þann 30. júlí síðastliðinn boðuðu áhugasamir aðilar til umræðufundar um stöðu kennslu í heimspeki og siðfræði í íslenskum skólum. Fundurinn var fjölsóttur og var sérlega ánægjulegt að sjá breiðan hóp fólks saman kominn til leita leiða til að fleiri íslendingar fái notið heimspekikennslu. Fundargerðina má nálgast hér.
Ráðstefna: Lærdómssamfélagið
Lærdómssamfélagið – Samræða allra skólastiga Ráðstefna um menntamál í Íþróttahöllinni á Akureyri Kall eftir erindum á málstofur ráðstefnunnar Þann 4. október n.k. verður haldin ráðstefna á Akureyri á vegum allra skólastiga. Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að samræðu kennara og stjórnenda af öllum skólastigum um lærdómssamfélagið. Ráðstefnan er haldin á Akureyri og boðuð í öllum símenntunarmiðstöðvum, leik-,… Continue reading Ráðstefna: Lærdómssamfélagið
Námskeið í Hollandi
Félag barnaheimspekinga í Hollandi heldur námskeið dagana 12.-14. ágúst næstkomandi. Á námskeiðinu mun Dr. Philip Cam heimspekingur og sérfræðingur í barnaheimspeki þjálfa þátttakendur í fræðilegum og hagnýtum grundvallaratriðum heimspekilegs samræðufélags. Hann mun fjalla um hugtakagreiningu með börnum og verkfærakassa heimspekingsins auk þess sem þátttakendur fá þjálfun í að byggja upp og styðja við heimspekilega samræðufærni.… Continue reading Námskeið í Hollandi
Fréttabréf júní 2013
Fréttabréf heimspekikennara í júní 2013 er komið á vefinn. Fréttabréfið kemur út mánaðarlega og flytur fréttir af störfum og hugmyndum heimspekikennara á Íslandi. Í nýjasta tölublaðinu má meða annars lesa fréttir af aðalfundi, upplýsingar um námsefnisgerð, viðtal við Guðrúnu Hólmgeirsdóttur, grein um hvernig foreldrar geta kennt börnum sínum gagnrýna hugsun og verkefni um heilbrigði.
Viðtal við heimspekikennara: Guðrún Hólmgeirsdóttir
Ritstjórn heimspekitorgsins tók stutt viðtal við Guðrúnu Hólmgeirsdóttur, heimspekikennara við Menntaskólann í Hamrahlíð. Hér að neðan segir hún frá kennslunni sinni og sýn á heimspekikennslu almennt. Spurning 1: Hvar ert þú að kenna heimspeki? Hvernig er heimspeki byggð inn í skólastarfið? Hvaða áfangar eru kenndir? Er heimspeki valgrein eða skylda á ákveðnum brautum? Guðrún: Ég kenni… Continue reading Viðtal við heimspekikennara: Guðrún Hólmgeirsdóttir
Aðalfundur 25. maí
Aðalfundur Félags heimspekikennara verður haldinn laugardaginn 25. maí 2013, kl. 11, og fer fram í húsnæði Verzlunarskóla Íslands. Hildigunnur Sverrisdóttir, aðjúnkt og fagstjóri í arkitektúr, heimsækir félagið og heldur námskeið undir yfirskriftinni „Skapandi dvelur manneskjan – er hægt að kenna henni það?“ Hildigunnur kennir við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og hefur unnið með gagnrýna… Continue reading Aðalfundur 25. maí
Fréttabréf maí mánaðar er komið út
Í fréttabréfi maí mánaðar segir m.a. frá komandi aðalfundi félagsins, viðtöl við heimspekinema og heimspekikennara eru birt, verkefni úr smiðju Jason Buckley eru í boði og sagt er frá nýafstöðu námskeiði fyrir kennara og samstarfi Heimspekitorgs og Menntamiðju. Að venju er Fréttabréfið sem sagt stútfullt af efni.
Hugsun og hamingja
Mánudaginn 6. maí kl. 20.00 í Hljóðbergi, sal Hannesarholts, munu Páll Skúlason, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Henry Alexander Henrysson flytja stutt erindi og standa fyrir umræðum um tengsl hugsunar og hamingju og varpa fram ýmsum spurningum um efnið. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.