Málþing 13. apríl: Innleiðing grunnþáttanna lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í þverfaglegu skólastarfi

Laugardaginn 13. apríl stendur Félag heimspekikennara fyrir málþingi um „Innleiðingu grunnþáttanna lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í þverfaglegu skólastarfi“.

Félag heimspekikennara er fagfélag kennara á öllum skólastigum og er meginmarkmið þess að efla samstarf heimspekikennara í skólum og þeirra sem starfa við æskulýðsstarf á öðrum vettvangi, sem og að vinna að eflingu heimspekikennslu hérlendis með því að vera ráðgefandi aðili gagnvart fræðslu- og skólayfirvöldum um tilhögun heimspekikennslu í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.

Dagskrá málþingsins er sem hér segir:

  • Elsa Björg Magnúsdóttir: Raunverulegt gildismat?
  • Ingimar Waage: Viðhorf kennara til lýðræðis í grunnskólastarfi
  • Jóhann Björnsson: Kennslustund í lýðræði eða lýðræðisleg kennslustund?
  • Kristín Dýrfjörð: Er ekki bölvað vesen að tengja grunnþáttinn lýðræði öðrum grunnþáttum?
  • Ólafur Páll Jónsson: Lýðræði og mannréttindi sem grunnþáttur: Viðmið, markmið eða aðferð?
  • Sigurlaug Hreinsdóttir: Samhljómur lýðræðisins

Málþingið, sem ætlað er öllum kennurum og áhugafólki um uppeldi og menntun, fer fram í Réttarholtsskóla og hefst kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis og verða kaffiveitingar í boði Félags heimspekikennara.

Sjá nánar á Facebook síðu viðburðarins.