Kynning á Aðalnámskrá fyrir foreldra

Kynning á Aðalnámskrá fyrir foreldra

Síðustu ár hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla í takt við nýja menntastefnu. Hér er um að ræða mikil tímamót í íslensku skólastarfi og mikilvægt að foreldrar kynni sér í hverju breytingarnar felast.

Heimili og skóli – landssamtök foreldra halda opinn kynningarfund á nýrri aðalnámskrá á sal Hlíðaskóla í Reykjavík mánudaginn 22. apríl kl. 20. Farið verður m.a. stuttlega yfir nýja grunnþætti menntunar, þá hæfni sem skólinn á að senda nemendur með sem veganesti út í lífið, nýtt námsmat (í bókstöfunum A, B, C og D) og tengsl þess við hæfniþrep framhaldsskólans.

Markmiðið er að koma af stað umræðu meðal foreldra og leitast við að svara spurningum sem á ykkur brenna.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Heimili og skóli – landssamtök foreldra